Tvö námskeið

Tvö námskeið verða haldin á vegum Tónskólans fyrir nemendur og organista í starfi. Fyrra námskeiðið er um hvernig hægt er að flytja léttu lögin smekklega á orgel og leika undir söng og verður í nóvember. Leiðbeinandi er Jónas Þórir Þórisson. Hið síðara fjallar um flutningsmáta barroktónlistar og leiðbeinandi er Eyþór Ingi Jónsson.

Námskeið í orgelspili á “léttum lögum” fyrir orgelnemendur og starfandi organista

Námskeiðið er hugsað til að skoða hvað organisti getur gert þegar hann fær óskir um að spila lög (við skírnir, útfarir, brúðkaup) sem sum hver eru ekki til útskrifuð, eða þá eru bara útsett fyrir píanó, eða aðeins laglínan er skrifuð út. Einnig verður undirleikur á slíkum lögum með söngvara skoðað. Anna Sigríður Helgadóttir messósópran mun aðstoða við þann hluta.

Hér á eftir fylgir lagalisti og nótur sem hafðar verða til hliðsjónar en þátttakendur geta líka komið með séróskir og og sínar eigin hugmyndir að lögum. Leiðbeinandi er Jónas Þórir organisti við Mosfellsprestakall.

Verð fyrir organista utan Tónskólans er kr. 15.000 en FÍO greiðir námskeiðsgjald niður um helming fyrir sína meðlimi.

Námskeiðsdagar verða sem hér segir:

Miðvikudaginn 5. nóvember kl. 9.00 – 12.00 í Langholtskirkju.
Föstudaginn 7. nóvember kl. 9.00-12.00 í Fríkirkjunni í Reykjavík
Miðvikudaginn 12. nóvember kl. 9.00 – 12.00 í Fríkirkjunni í Reykjavík
Föstudaginn 14. nóvember kl. 9.00-12.00 í Langholtskirkju.

Námskeiðið endar síðan með tónleikum kl. 12.00 föstudaginn 14. nóvember.

Lagalisti:

Ó Jesús bróðir besti, SB 503
Full af gleði SB 585
Þú ert
Hvert örstutt spor
Dagný
Góða nótt
Söknuður
Óðurinn til kærleikans
Drottinn er minn hirðir
When I think of Angels
When I see you in heaven
Í bljúgri bæn SB 552
Amazing Grace “Ég trúi á ljós”
Enginn þarf að óttast síður
Kom vornótt og syng
Ég bið að heilsa
Perhaps Love
Rósin
Enn syngur vornóttin
Hvem kan sigla
Sofðu rótt
What a wonderful world
Ó þú
Con te Partero
Cavatina
Yesterday
Líður að dögum SB 703

Námskeið Eyþórs Inga Jónssonar< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Verð fyrir virka nemendur utan Tónskóla Þjóðkirkjunar kr. 20.000. FÍÓ greiðir námskeiðsjald félaga sinna niður um helming.

Bent skal á að samkvæmt starfsreglum organista bera organista “með stuðningi sóknarnefndar að viðhalda þekkingu sinni og menntun eftir föngum til að geta ávallt sem best sinnt starfi sínu”

Flutningur tónlistar frá N-Þýska barroktímabilinu

Eyþór Ingi Jónsson

Markmið áfangans er að kynna lítillega þá tónlist sem kennd er við N-Þýskaland.

Þessi tónlist er samin á árunum 1630-1730 á svæðinu í kring um Hamborg.

Ég mun verða með fyrirlestur í hverjum hóptíma, þar sem ég mun annars vegar fjalla um tónskáld og svo hins vegar um tæknileg atriði og annað sem tengist flutningi tónlistarinnar. Gert er ráð fyrir að sem flestir spili í hvert skipti. Ég mun fljótlega senda út lista yfir verk sem verða spiluð og þá er mjög gott að sem flestir taki með sér nótur ef möguleiki er á. Ég mæli eindregið með að þeir sem spila kaupi sér þær nótur sem þeir spila. Ég hef talað við Gaut í Tónastöðinni og hann mun sjá um pantanir fyrir okkur.

Gert er ráð fyrir að í námskeiðinu séu innifalin einkakennsla sem samsvarar tveim klukkutímum.

Kennslan fer að mestu fram í Langholtskirkju, en fyrirhugað er að fara einu sinni í aðra kirkju.

DAGSKRÁ

Miðvikudagur 3. desember 2003 í Langholtskirkju.

Spilatækni, fingrasetningar, fótsetningar, artikulation

Scheidemann, Weckmann

Miðvikudagur 21. janúar 2004

Gerð orgela frá þessum tíma, útskýra muninn á hljómi og allri gerð þessarra orgela og nútíma orgela, stillingar o.fl., orgelsmiðurinn Arp Schnitger, Tungurödd stillt í meantone

Tunder, Lübeck

Miðvikudagur 4. febrúar 2004

Raddval

Buxtehude

Miðvikudagur 3. mars 2004

Tónsmíðarnar, helstu form og einkenni, samanburð á tónskáldum, symbolik, samanburður við samtímaverk frá Frakklandi, S-Þýskalandi, Ítalíu, Englandi, Spáni

Bruhns, Böhm

Miðvikudagur 10. mars 2004

Útgáfur farið yfir ólíkar nótnaútgáfur, ofl.

Pre- and Post- (Scheidt, Sweelinck, Praetorius, Bach….)