Nýtt í bókasafninu
Nokkuð hefur verið keypt inn af nótum undanfarið, sem vonandi kemur að gagni, bæði fyrir nemendur skólans, en einnig starfandi organista.
Nokkuð hefur verið keypt inn af nótum undanfarið, sem vonandi kemur að gagni, bæði fyrir nemendur skólans, en einnig starfandi organista.
Má þar nefna að nú eru til allar kantötur J.S. Bachs í píanóútdrætti, og messur eftir Haydn og Mozart, auk annarra stærri verka.
Nýlega bættist í safnið Permen sem er “lett utförbare orgelstykker med koralmotiv” í 13 stórum lausblaðamöppum sem Norðmenn hafa verið að gefa út. Samsvarandi mappa er einnig til með forspilum af ýmsum stærðum og gerðum við Dönsku sálmabókina, oftast fleiri en ein útgáfa fyrir hvern sálm.
Einnig eru ýmsar nótnabækur aðrar frá Cantando forlaginu og einnig sýnishorn frá Kirkesangforlaget í Noregi.



