Námskeið í kórstjórn
Sænski kórstjórinn Anders Eby verður með masterklass í kórstjórna dagana 14. og 15. apríl næstkomandi.
Anders Eby er prófessor í kórstjórn við Konunglega Tónlistarháskólann í Stokkhólmi og er að koma með kammerkór skólans í tónleikaferð til Íslands.
Anders Eby lærði kórstjórn hjá Eric Ericsson við Konunglega Tónlistarsháskólann í Stokkhólmi og útskrifaðist 1977. Eftir það lærði hann á Ítalíu, í Frakklandi og Bandaríkunum.
Hann hefur verið prófessor í kórstjórn við Konunglega Tónlistarháskólann í Stokkhólmi síðan 1994 og stjórnar einnig kammerkór skólans, sem kemur með honum til Íslands. Einnig stofnaði hann Mikaeli Kammerkórinn og hefur ferðast með hann víða um lönd við góðan orðstír.
Námskeiðið í kórstjórn verður haldið í Safnaðarsal Grensáskirkju kl. 14.00-17.00 fimmtudaginn 14. apríl og kl. 11.00 -16.00 föstudaginn 15. apríl. Kammerkórinn verður til staðar á námskeiðinu. Farið verður m.a. í kórverk sem kórinn er með á efnisskrá sinni, en auk þess geta virkir þáttakendur komið verk að eigin vali. Þá þurfa upplýsingar um það að koma með umsókn. Anders Eby vill hitta virka þáttakendur á miðvikudagskvöldið 13. apríl. Nótur verða sendar út til þátttakenda strax eftir páska. Meðal verkanna er eftirfarandi:
Lars-Erik Rosell: Aldrig kan själens längtan stillas (written for the choir)
Lars-Johan Werle: Canzone 126 di Petrarca
Jaakko Mäntyjärvi: Canticum calamitatis maritimae
Auk þess sænsk kórtónlist eftir Hugo Alfvén, Sven-Erik Bäck, Oskar Lindberg, Wilhelm Stenhammar og aðra, verk sem hentur eru fyrir masterklass.
Verð fyrir virka þáttakendur er kr. 10.000
Verð fyrir áheyrn er kr 3.000 fyrir báða dagana.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir að sækja um í tölvupósti á kristinn@tonskoli.is fyrir 1. apríl, hvort sem um er að ræða virka eða óvirka þátttöku.



