Gjöf til Tónskólans
Skólanum hefur borist að gjöf Johannus rafmagnsorgel með tveim spilaborðum og pedal til æfinga.
Skólanum hefur borist að gjöf Johannus rafmagnsorgel með tveim spilaborðum og pedal til æfinga. Hér er um að ræða hljóðfæri sem Frímúrarahreyfingin átti en seldi er hún eignaðist pípuorgel. Ingvi Jakobsson, fyrrverandi lögregluvarðstjóri í Keflavík, sem er mikill tónlistaráhugamaður og hefur lært bæði á píanó og orgel eignaðist þetta hljóðfæri og hefur nú gefið skólanum það. Þess má geta að Ingvi er móðurbróðir Jón Þorsteinssonar söngkennara við skólann.



