Guðrún Tómasdóttir 80 ára

Guðrún Tómasdóttir varð áttræð þann 13 apríl síðastliðinn.

Guðrún Tómasdóttir varð áttræð þann 13 apríl síðastliðinn. Guðrún kenndi söng um árabil við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og einnig við guðfræðideildina og hafa því margir starfandi organistar og prestar notið leiðsagnar hennar. Haft var á orði að Guðrún væri gangandi alfræðibók varðandi allt er laut að íslenskum sönglögum og söngtextum, og víst er að hún hefur greitt götu margra gegnum árin, og hugsað vel um sitt fólk.