Velheppnað námskeið í kórstjórn

Nú er nýlokið námskeiði Anders Eby í kórstjórn. Námskeiðið var sérlega velheppnað.

Anders Eby kom hingað til lands með Kammerkór Konunglega Tónlistarháskólans og var hann með prófessor Eby á öllu námskeiðinu. Það var frábært tækifæri fyrir nemendur að fá að æfa sig á slíkum kór. Kennsla Anders var hnitmiðuð; hann var í senn jákvæður og almennilegur en um leið mjög kröfuharður og gaf ekkert eftir.

Kammerkórinn hélt tvenna tónleika hér á landi, á fimmtudagskvöldið í Reykholtskirkju og föstudagskvöldið í Neskirkju.