Skólaslit 2005

Tónskólanum var slitið þann 25. maí síðastliðinn. Við það tækifæri voru fluttir þættir úr Mozart Requem undir stjórn kórstjórnarnema á 3. ári.

Tónskólanum var slitið þann 25. maí síðastliðinn í Grensáskirkju. Við það tækifæri voru fluttir þættir úr Mozart Requem undir stjórn kórstjórnarnema á 3. ári.

Tveir nemendur voru útskrifaðir í vor, þeir Jónas Þórir með kantorspróf og Bjartur Logi Guðnason með kirkjuorganistapróf.

Alls voru 25 nemendur á skrá í vetur. Þar af voru 2 á Akureyri og 1 á Egilstöðum. Fimm stunduðu nám í Kórstjórn og raddþjálfun eingöngu. Einn nemandi var aðeins skráður í bóklegar greinar. Fjórir nemendur heltust úr lestinni að einhverju leyti á miðjum vetri. Eftir stóðu 12 orgelnemendur sem voru virkir og stunduðu námið af krafti.

Fjórir nemendur luku 3. árs prófi í Kórstjórn, 2. árs prófi luku þrír og 1. árs prófi luku Fjórir. Hæstu einkunn í kórstjórn hlaut Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir.< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Fimm nemendur luku 1. áfanga í litúrgískum orgelleik, þar af tveir á Akureyri. Þrír luku 2. áfanga. Hæstu einkunn í litúrgískum orgelleik hlut Aðalheiður Þorsteinsdóttir.

Hæstu einkunn á ársprófi í orgelleik hlaut Tómas Guðni Eggertsson, < ?xml:namespace prefix = st1 ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:smarttags" />Kári Allansson hæstu einkunn á ársprófi í píanóleik, og Gunnhildur Baldursdóttir hæstu ársprófseinkunn í söng. Hæstu einkunn í bóklegum greinum hlaut Hannes Baldursson í kirkjusöngfræði og orgelfræði.