Námskeið David Sanger á kirkjulistahátíð
Hinn þekkti konsertorganisti og kennari, David Sanger, verður með meistaranámskeið í orgelleik á Kirkjulistahátíð í samvinnu við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Félags íslenskra organleikara.
Dagskrá námskeiðsins (með fyrirvara um breytingar)
< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Mánudaginn 22. ágúst
kl. 10.00-12.30 í Langholtskirkju
J. S. Bach: Konsert í G-dúr BVW 592
< ?xml:namespace prefix = st1 ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:smarttags" />Steingrímur Þórhallsson
J. S. Bach Prelúdía og fúga í D-dúr BVW 532
Kári Þormar
Kl. 14.00 -16.00 í Hallgrímskirkju
Cesar Franck: Chorale í a-moll
Jón Bjarnason
Eugéne Gigout: Toccata
Jónas Þórir Þórisson
Þriðjudaginn 23. ágúst
Kl. 09.00-11.30 í Hallgrímskirkju
Naji Hakim: Tangelingua
Kári Þormar
Vidor: Finale úr 6. orgelsinfóníunni
Steingrímur Þórhallsson
Kl. 12.00-12.30 Hádegisandakt í Hallgrímskirkju
(þátttakendur á námskeiðinu leika)
Kl. 14.00-16.00 í Langholtskirkju
J.S. Bach: Tríósónta í Es-dúr
Jón Bjarnason
J.S. Bach: Kommst du nun Jesu vom Himmel herunter, BWV 650
Jónas Þórir Þórisson
Miðvikudaginn 24. ágúst
Kl. 09.00-11.30 í Hallgrímskirkju
J. S. Bach: Fantasía í G-dúr, BWV 572
Tómas Guðni Eggertsson
Timi til frjálsrar ráðstöfunar
Kl. 12.00-12.30 Hádegisandakt í Hallgrímskirkju
(þátttakendur á námskeiðinu leika)
Um David Sanger
David Sanger er orgelleikari, tónskáld, ráðgjafi og kennari og hafa nemendur hans margir unnið til hinna ýmsu verðlauna. Hann hefur sjálfur unnið tvær alþjóðlegar keppnir, í St. Albans í Englandi 1969 og í Kiel í Þýskalandi 1972.
David hefur komið fram á Proms og í Royal Festival Hall. Hann hefur farið víða í tónleikaferðir m.a. til Norðurlandanna. Á meðal kennara hans eru Susi Jeans, Marie-Claire Alain og Anton Heiller.
David Sanger hefur leikið inn á 18 geisladiska. Þar á meðal 6 orgelsinfóníur eftir Vierne, orgelverk J. S. Bach og Césars Franck. Einnig verk eftir Lefébure-Wély, hljóðritað á orgel Easter College í Oxford en hann var ráðgefandi við val á því hljóðfæri. Einnig var hann til leiðsagnar við endurgerð á orgelinu í Usher Hall í Edinborg og á fleiri stöðum.
David Sanger hefur verið með meistaranámskeið, flutt fyrirlestra og stjórnað námskeiðum í mörgum löndum og í 14 ár var hann stjórnandi námskeiða í kirkjutónlist í Bergen. Hann hefur verið prófessor í orgelleik við Royal Academy of Musik í London og var yfirmaður orgeldeildarinnar 1987-1989, einnig gestaprófessor við Konunglegu tónlistarakademínuna í Kaupmanna-höfn í 2 ár. Hann er nú orgelkennari við háskólana í Oxford og Cambridge.
David Sanger hefur verið dómari í alþjóðlegum orgelleikarakeppnum í St. Albans, Paisley, Alkmaar, Nuernberg og víðar.
David hefur samið tónlist fyrir orgel og einnig fyrir strengi og kór. Missa Brevis fyrir drengjakór sem hann samdi fyrir dómkirkjuna í Westminster var frumflutt 1992. Lakeland strengjasvíta eftir hann var nýlega flutt í Bandaríkjunum af Grand Rapids strengjasveitinni. Kennslubók hans fyrir byrjendur í orgelleik Play the Organ hefur verið mjög vinsæl í Bretlandi síðustu ár.



