Tónskólinn tók þátt í kirkjudögum
Tónskólinn var með sýningarbás á kirkjudögum, auk þess sem nemendur komu fram við ýmis tækifæri.
Tónskólinn var með sýningarbás á kirkjudögum, auk þess sem nemendur komu fram við ýmis tækifæri.
Vinna var lögð í að gera nýjan bækling fyrir skólann og verður honum dreift í allar sóknir nú í haust til kynningar á starfi skólans. Þeir sem vilja fá eintak geta sent póst á tonskoli@tonskoli.is.
Söngnemendur fluttu þætti úr nútímalegu grínverki eftir Mary Scheifer í kórakaffi, tóku (sálma)lagið við undirleik töskuorgels, og einnig léku nemendur á orgel Hallgrímskirku á kynningu Harðar Áskelssonar á orgelinu.



