Engin námskeið vegna sparnaðar…

Tónskólinn hefur gjarna boðið námskeið sem verið hafa bæði fyrir nemendur og fyrir starfandi organista til endurmenntunar.

Ekki verður um slík námskeið að ræða um sinn þar sem skólanum hefur verið gert að draga saman útgjöld. Það hefur reynst örðugt, þar sem launakostnaður hefur hækkað verulega meir en verðbólgan, fjárframlög staðið nokkurn veginn í stað og þar af leiðandi hefur hlutfall launa í heildarkostnaði aukist síðari ár.