Fjarkennsla á haustönn 2005

Tvær námsgreinar eru kenndar í fjarnámi þessa önn.

Tvær námsgreinar eru kenndar í fjarnámi þessa önn, kirkjusöngfræði 101 sem Smári Ólason kennir og kirkjufræði 101 sem Hreinn Hákonarson kennir.

Í kirkjusöngfræðinni er farið í nýtt tímabil í sálmasöng á Íslandi á 19. öld.og þróun messusöngsins frá þeim tíma, messusöngsbækur 19. og 20 aldar, val á sálmum við guðsþjónustur og messusöngva.

Í kirkjufræðinni er fjallað um tilurð Biblíunnar og þó einkum Nýja testamentisins, sögu og umhverfi, túlkun og boðskap. Rætt verður um leiðir til að koma boðskap Biblíunnar til skila; um kennivald hennar og Biblíuna sem grunnheimild kristinnnar trúar. Fimmtán nemendur eru skráðir á hvort námskeið.

< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />