Námsgreinar á vorönn 2006
Meðal nýrra greina á næstu önn verður kirkjufræði 301 sem fjallar um tónlist messunnar frá Gregor til gospel.
Meðal nýrra greina á næstu önn verður kirkjusöngfræði 301 sem fjallar um tónlist messunnar frá Gregor til gospel. Umsjón með þeim áfanga hefur Smári Ólason. Einnig verður framhald í fyrsta hluta kirkjusöngfræðinnar í fjarnámi, sem tilheyrir kantorsnáminu.
Kennd verður kirkjusöngfræði 201, sem eru verklegar æfingar í messuflutningi með guðfræðinemum undir umsjón sr. Kristjáns Vals Ingólfssonar.
Kirkjufræðin verður kennd áfram í fjarnámi, og verða kenndir báðir síðari áfangarnir, KSF 201 og 301 á sömu önninni. Kirkjufræðin verður þá ekki kennd skólaárið 2006-2007 en tekin upp aftur skólaárið 2007-2008.
Ennfremur verður hópur í hljómborðsleik 221, þar sem Jónas Þórir mun skoða jazzskotna bókstafshljóma til undirleiks við léttari söngva.


