Jólatónleikar Tónskólans

Jólatónleikar Tónskóla Þjóðkirkjunnar verða haldnir í Langholtskirkju kl. 15.00 laugardaginn 17. desember. Flutt verður fjölbreytt dagskrá.

Jólatónleikar nemenda Tónskóla Þjóðkirkjunnar verða í Langholtskirkju laugardaginn 17. desember kl. 15.00. Þar verður flutt fjölbreytt efniskrá. Meðal annars verða flutt söngverk eftir Bach, Mozart og Carl Nielsen. Orgelið mun hljóma í prelúdíum, tökkötum og fúgum eftir Bach, einnig verða flutt orgelverk eftir Peter Hurford, Claude Daquin, Charles Widor og Felix Mendelsohn. Fram koma orgelnemendur Björns Steinars Sólbergssonar, Douglasar Brotchie og Guðmundar Sigurðssonar og söngnemendur Jóns Þorsteinssonar. Ennfremur munu nokkrir kórstjórnarnemar stjórna kórverkum í anda jólanna, en kórstjórnarkennari er Hákon Leifsson. Allir velunnarar skólans eru hjartanlega velkomnir og aðgangur er ókeypis.< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />