Nemendur Tónskólans á kyrrðarstund í Hallgrímskirkju

Fimmtudaginn 15. desember munu nokkrir nemendur Tónskólans spinna af fingrum fram við kyrrðarstund í hádeginu.

Fimmtudaginn 15 desember munu fimm nemendur Tónskólans leika af fingrum fram á orgel Hallgrímskirkju við kyrrðarstund í hádeginu. Þetta eru nemendur Harðar Áskelssonar í litúrgískum orgelleik og munu þeir spinna ólík form, sálmforleiki, passacagliu og tokkötur. Þetta eru þau Arngerður María Árnadóttir, Bjartur Logi Guðnason, Jón Bjarnason, Tómas Guðni Eggertsson og Sveinn Arnar Sæmundsson.

Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson flytur hugleiðingu, kyrrðarstundin hefst með orgelleik klukkan 12.00 og tekur um hálfa klukkustund. Léttar veitingar að lokinni kyrrðarstund.< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />