Námskeið um tónlist kirkjunnar
Hér er um að ræða nýtt námskeið um sönginn í kirkjunni allt frá Gregor til gospel.
Kirkjusöngsfræði III – Tónbókmenntir
KSF 301 – Ein önn, 1 eining
Kennt í Grensáskirkju á miðvikudögum kl. 13.00-14.30. Kennsla hefst 11. janúar, kennt er í 16 skipti.
Hægt er að sækja um dreifða tímasókn eða fjarnám t.d. vegna búsetu úti á landi en þá bætast við verkefni sem þarf að leysa.
Kennari er Smári Ólason
Námskeiðsgjald er kr. 10.000,-
Engar tónlistarmenntunar er krafist námskeiðið er opið fyrir alla sem hafa áhuga.
Yfirlit efnis
I: Samtíminn
Í byrjun er samtíma kirkjutónlist í evangelískum-lúterskum kirkjum á Íslandi og í helstu nágrannalöndum okkar skoðuð, þ.e. á Íslandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Bretlandi, Norður Ameríku og Norður-Þýskalandi. Fjallað er um helstu stefnu kirkjutónlistar í þessum löndum.
II: Fyrsta tónlist kirkjunnar
Fjallað er um þróun kristinnar kirkjutónlistar fyrstu 1000 árin. Söngur Davíðssálma, fyrsta þróun á litúrgískum söng kristninnar. Gregorssöngur frá fjölbreytleika til skipulagðra söngva. Skreyting á litúrgískum söng
III: Tónlist kirkjunnar frá 1000 til ca 1500
IV: Tónlist kirkjunnar á 16. og 17. öld.
a) Þróun kirkjutónlistar kaþólsku kirkjunnar, Palestrina og fleiri. b) Tónlist mótmælendakirkna, Lúther og Kalvín
V: Tónlist kirkjunnar á 18. öld
a) Þróun kirkjutónlistar kaþólsku kirkjunnar. Áhrif frá tónlist mótmælendakirknanna í kaþólsku helgihaldi b) Tónlist mótmælendakirkna
VI: Tónlist lútersku kirkjunnar á 19. og 20. öld
Sérstaklega er skoðuð þróun sálmasöngsins í sömu löndum og í kafla I.
Lýsing á námskeiði
Það verður aldrei nógsamlega brýnt fyrir söfnuðum kirkjunnar að vanda tilbeiðslu sína eins og fram kemur í Fyrra Korintubréfi Páls postula, 14:15. Ég vil biðja með anda, en ég vil einnig biðja með skilingi; ég vil lofsyngja með anda, en ég vil einnig lofsyngja með skilningi. Á þessu námskeiði munum við kanna og skilgreina safnaðarsöng í 2000 ára sögu kristninnar. Markmið námskeiðsins er að auka skilning á boskap þeirra texta og tónlistar sem kristnir söfnuður syngja og hafa sungið og skoða hvorutveggja út frá sjónahóli sögu, menningar, guðfræði og flutnings svo við lofsyngjum saman meðvitað og með skilningi.
Markmið námskeiðsins og umfjöllun
Námskeið þetta er hluti af námsframboði Tónskóla þjóðkirkjunnar er hugsað til þess að auka þekkingu á safnaðarsöng ýmissa safnaða og skilja hlutverk sunginnar lofgjörðar.
Markmið námskeiðsins eru:
1. Að kynnast safnaðarsöng hjá mismunandi kirkjudeildum
2. Að læra að bera virðingu fyrir mismunandi trúfélögum, siðum þeirra, menningu og venjum
3. Að beita gangrýnum sjónum að texta og tónlist helgihaldsins, og hvernig þessir þættir eru framkvæmdir með tilliti til flutnings og þátttöku
Bækur sem stuðst er við:
Harry Eskew and Hugh McElrath, Sing with Understanding, 2nd edition (Nashville: Church Street Press, 1995). Ýmsar greinar úr tímaritum og bókum. Sálmabækur: SB 1972 (eða seinni útgáfur) SSB 1936, SB 1997, SSB 1999. Hlustunarefni
Námsmat
Kennsla, mæting í tíma: 50% Verkefni í hópvinnu: 25% Einstaklingsverkefni: 25%. Gert er ráð fyrir að lágmarki 80% mætingu. Vanti nemanda í tíma verður hann að leysa og skila inn sérstöku verkefni sem byggt er á yfirferð tímans. Hægt er að sækja um dreifða tímasókn eða fjarnám t.d. vegna búsetu úti á landi en þá bætast við verkefni sem þarf að leysa.


