Kórstjórnarnemar á námskeiði

Dagana 14. og 15. febrúar stendur yfir námskeið í kórstjórn þar sem nemar Tónskólans njóta leiðsagnar Guðmundar Óla Gunnarssonar.

Dagana 14. og 15. febrúar stendur yfir námskeið í kórstjórn þar sem nemar Tónskólans njóta leiðsagnar Guðmundar Óla Gunnarssonar. Nú í vetur eru 14 nemendur skráðir í kórstjórn. Auk orgelnema skólans eru þar barnakórstjórar í kirkjum og aðrir sem sækja sér endurmenntun. Kennari í kórstjórn er Hákon Leifsson. Námið er skipulegt sem þriggja ára nám, og innifalin í því er leiðsögn í raddþjálfun.