Námskeið í kórstjórn á Austurlandi

Á næstunni verður námskeið í kórstjórn fyrir núverandi og verðandi organista, og annað tónlistarfólk, á Austurlandi.

Á næstunni verður námskeið í kórstjórn fyrir núverandi og verðandi organista, og annað tónlistarfólk, á Austurlandi.

Námskeiðið er haldið með stuðningi Tónskóla þjóðkirkjunnar í samvinnu við heimamenn. Kennt verður samkvæmt námskrá Tónskóla Þjóðkirkjunnar í Kórstjórn I. Námskeiðinu lýkur með prófi og gefur það einingar til fyrsta áfanga kirkjuorganistaprófs. Kennari verður hinn vel þekkti stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Guðmundur Óli Gunnarsson. Þáttakendagjald verður 5.000 kr.

Umsjón og skráning er hjá Torvald Gjerde (simar: 475 8865 / 869 8133, netfang: torvald@ts.is.

Námskeiðið byrjar þriðjudaginn 28. febrúar kl. 17.00 í Fella skóla í Fellabæ og er áætluð dagskrá sem hér segir:< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Þri. 28. febr. kl. 17.00-22.00 í Fella skóla

Mið. 1. mars kl. 9.00-12.00 í Egilsstaða kirkju

Þri. 14. og mið 15. mars eins

Þri. 28. og mið 29. mars eins

Til viðbótar verður ákveðið eitt fjórða skiptið ásamt prófi á meðan námskeiðið er. Ætlunin er að námskeiðinu verði lokið fyrir páska.