Námskeið í orgeltónlist barrokk og endurreisnar

Námskeið verður mánudaginn 3. apríl kl. 10.00-14.00 í Langholtskirkju þar sem þeir Eyþór Ingi Jónsson og Lars Sjöstedt munu leiða þátttakendur um leyndardóma orgeltónlistar frá tímum barrokks og endurreisnar.

Námskeiðið verður á vegum Tónskóla Þjóðkirkjunnar mánudaginn 3. apríl í Langholtskirkju kl. 10.00 – 14.00. Létt hádegishressing í boði skólans. Skyldumæting fyrir alla orgelnemendur skólans. Starfandi organistar og annað áhugafólk velkomið gegn vægu gjaldi. Leiðbeinendur verða Þeir Eyþór Ingi Jónsson og Lars Sjöstedt. Kirkjan verður opin frá kl. 9.00 fyrir þá sem vilja grípa í orgelið.

Dagskrá

  • Nemendur Tónskólans munu spila verk eftir Jóhann Sebastian Bach og njóta leiðsagnar þeirra Eyþórs og Lars Sjöstedt..
Tómas Guðni Eggertsson: J. S. Bach: Prelúdía og fúga í A-dúr
Julian Edward Isaacs: Bach/Vivaldi: 1. þáttur úr konsert í a-moll
Jón Bjarnason: J. S. Bach: 2 sálmaforleikir , An wasserflüßen Babylon og Komm Gott, Schöpfer, heiliger geist
Jónas Þórir: J. S. Bach: Prelúdía og fúga í G-dúr
  • Eyþór Ingi Jónsson kynnir fyrir okkur falin tákn, talnafræði og aðra leyndardóma orgelverka í orgeltónlist 17. aldar með með tilvísun til verkanna Es ist das Heil uns kommen her eftirMatthias Weckmann (1616-1674) og Vater unser im Himmelreich eftir Georg Böhm (1661-1733)
  • Lars Sjöstedt mun fjalla um útfærslu fylgiraddaleiks í barrokktónlist.
  • Þáttakendum er velkomið að koma með tóndæmi og leita svara við spurningum sínum.

Lars Sjöstedt heldur síðan orgeltónleika í Digraneskirkju kl. 20.00, mánudaginn 3. apríl. Hann mun leika orgelverk eftir Muffat, Froberger og Mozart. Ókeypis aðgangur fyrir nemendur Tónskólans.

Um leiðbeinendur

Lars Sjöstedt lauk árið 2000 kirkjutónlistarprófi frá Piteå og 2003 konsertorganistaprófi. Hans-Ola Ericsson var aðalkennari hans. Einnig nam hann Generalbassaspil í Konunglega Tónlistarháskólanum í Stokkhólmi og stærðfræði samhliða námi í Piteå. Árið 2004 dvaldi hann í Bremen, þar sem hann var í námi hjá Harald Vogel. Hann hefur sótt fjölda meistarakúrsa í orgel-, sembal- og klaíkordleik. M.a. hjá Olivier Latry, Joel Speerstra, Pamela Ruiter-Feenstra og William Porter. Hann hefur tekið þátt í orgelkeppnum með góðum árangri, hefur komist í úrslit í Reger og Messiaen keppninni í Graz, og í Hofhaimerkeppninni í Innsbruck og fékk verðlaun í Wolfrumkeppninni í Heidelberg árið 2004.

Lars starfar sem organisti í Norrfjärden kikjunni, þar sem hann hefur barokkorgel í N-þýskum stíl, ásamt því að starfa sem undirleikari og sembalkennari við Tónlistarháskólann í Piteå.

Eyþór Ingi Jónsson er fæddur og uppalinn í Dalasýslu, þar sem hann hóf tónlistarmenntun sína sex ára gamall. Hann nam síðar orgelleik hjá Fríðu Lárusdóttur við Tónlistarskólann á Akranesi. Eyþór lauk Kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar vorið 1998. Hann nam síðan Kirkjutónlist við Tónlistarháskólann í Piteå í Svíþjóð og er nú við nám í Konsertorganistadeild í sama skóla. Orgelkennarar hans eru prófessor Hans-Ola Ericsson og Gary Verkade. Hann hefur einnig sótt námskeið hjá fjölda þekktra kennara eins og Harald Vogel, Wolfgang Zerer, Jon Laukvik, Mathias Wager, Olivier Latry o.fl. Veturinn 1998 – 99 starfaði hann sem organisti í Akureyrarkirkju í leyfi Björns Steinars Sólbergssonar og árið 2002 starfaði hann sem kantor og orgelkennari í Skellefteå Lands Kyrka í Svíþjóð. Hann starfar nú sem kórstjóri og orgelleikari við Akureyrarkirkju samhliða námi. Einnig er hann stjórnandi sönghópsins Hymnodia. Eyþór hefur einbeitt sér að flutningi tónlistar frá 17. öld, bæði fyrir orgel og kór. Hann á þátt í stofnun áhugamannahóps um þá tónlist á Akureyri.