Söngtónleikar nemenda Tónskólans

Nemendatónleikar verða í Neskirkju laugardaginn 25. mars kl. 14.30. Þar koma fram nemendur Tónskólans sem eru í söng og raddþjálfun hjá Jóni Þorsteinssyni og flytja fjölbreytta söngdagskrá. Meðal annars verða flutt samsöngsatriði úr Sálumessu Mozarts. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill!