Vortónleikar Tónskólans 2006

Þrennir vortónleikar nemenda verða á vegum Tónskólans að þessu sinni, 12.,13. og 14. maí. Fjölbreytt efni verður flutt og aðgangur er öllum heimill ókeypis!

Fyrstu vortónleikarnir verða í Hallgrímskirkju föstudaginn 12. maí kl. 12.00. Þar koma fram orgelnemendur Björns Steinars Sólbergssonar og flytja verk eftir Bach, Mendelsohn, Reger, Franck og Saint Saëns á Klais-orgelið.

Aðrir tónleikar verða laugardaginn 13. maí kl. 17.00 í Hjallakirkju í Kópavogi. Þar koma fram orgelnemendur Guðmundar Sigurðssonar og Douglasar Brotchie og söngnemendur Jóns Þorsteinssonar. Flutt verða m.a. orgelverk eftir Mendelsohn og Bach og sönglög af ýmsum toga.

Sunnudaginn 14. maí verða síðan útskriftartónleikar Jóns Bjarnasonar sem lýkur kantorsprófi og einleiksáfanga á orgel. Þeir hefjast kl. 18.00 og verða í Hallgrímskirkju. Á efniskránni verða sálmforleikir eftir Bach, Konsert í a-moll eftir Bach-Vivaldi, Fantasía eftir Mozart og þættir úr orgelsinfóníu eftir Widor.

Aðgangur er ókeypis á alla tónleikana og allir velkomnir.