Greinargerð – framtíðarhugmyndir um skipan kirkjutónlistarnáms
Skólastjóri hefur í samráði við skólastjórn sett fram greinargerð um framtíðarskipan kirkjutónlistarnáms, bæði með tilliti til framtíðarskipulags Tónskólans og æskilegs samstarfs við Listaháskóla Íslands í náinni framtíð. Þessar hugmyndir hafa þegar verið kynntar biskupi og kirkjuráði og fengið jákvæða umfjöllun. Einnig hafa þær verið ræddar við stjórnendur Listaháskóla Íslands og sendar til Menntamálaráðuneytisins.


