Skólinn settur á haustönn 2006 ásamt brautskráningu tveggja kantora

Tónskóli Þjóðkirkjunnar var settur föstudaginn 8. september s.l. í Grensáskirkju. Kristinn Örn Kristinsson, fráfarandi skólastjóri, útskrifaði við það tækifæri 2 kantora, þá Jón Bjarnason, starfandi organista við Seljakirkju í Reykjavík og Svein Arnar Sæmundsson, starfandi organista við Akraneskirkju. Eru þeim báðum fluttar hamingjuóskir á þessum tímamótum og óskað velfarnaðar í starfi.

Einar Sigurbjörnsson, formaður stjórnar Tónskólans þakkaði Kristni Erni góð störf í þágu skólans og bauð velkominn nýjan skólastjóra, Björn Steinar Sólbergsson, sem síðan setti skólann og bauð nemendur og kennara velkomna til starfa.

Nemendur við skólann á haustönn eru 29 og kennsla hófst þann 11. september.