Hjálp í sálmalögum.


Mánudaginn 29. janúar sl. fékk undirritaður það skemmtilega verkefni annað árið í röð að kenna á hjálparnámskeiði Tónskóla Þjóðkirkjunnar fyrir starfandi organista sem ekki hafa kirkjutónlistarmenntun. Það hefur verið nefnt „Hjálp í sálmalögum.“ (sbr. „Hjálp í viðlögum.“)

Á námskeiðið mætti galvaskur hópur þriggja kvenna í einn dag, þær Ave Tonisson organisti Ólafsfjarðarkirkju, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir organisti á Skagaströnd og Jóhanna organisti í Flugumýrar-og Miklabæjarkirkjum. Allt eru þetta prýðilegar tónlistarkonur hver á sínu sviði, en hungraði í grunnþekkingu á organistastarfinu og allt sem því viðkemur. Er gríðarlega mikilvægt að Tónskólinn bjóði upp á þetta námskeið þar sem fjölmargir starfa innan kirkjunnar án kirkjutónlistarmenntunar og vantar nauðsynlega leiðsögn. Á fyrsta námskeiðinu sem haldið var á síðasta ári, var einn þátttakandi en nú voru þeir þrír. Gaman er að sjá þessa fjölgun á milli ára. Hugsanlega mætti einnig halda þessi námskeið utan Reykjavíkur.
Á námskeiðinu er farið er yfir helstu grunnatriði organistastarfsins, s.s. hlutverk organistans í boðun kirkjunnar, tækni í sálmaspili og orgelleik, flutning messuliða, messuformið, val á sálmum, kirkjuárið, sögu sálmasöngs á Íslandi og margt fleira sem nauðsynlegt er fyrir organista að vita. Skiptust þátttakendur á að spila og á meðan léku hinir söfnuðinn og sungu. Var þessi yfirferð mjög gagnleg og bráðskemmtileg enda viðfangsefnið heillandi og spennandi.
Afar skemmtilegur andi ríkti á námskeiðinu og þátttakendur áhugasamir og virkir. Um margt var rætt sem tengdist starfi organista í kirkjunni og leið dagurinn hratt. Var ánægjulegt að finna mikinn áhuga þátttakenda á organistastarfinu og sýnir hann svart á hvítu að kirkjutónlistin heillar ungt tónlistarfólk. Er mikilvægt fyrir kirkjuna að ná til þessa fólks og fá það til þjónustu innan hennar.
Guðmundur Sigurðsson