Frábært námskeið Radulescu

Michael Radulescu hélt námskeið í orgelleik núna í maí. Var námskeiðið í samvinnu við Langholtskirkju og Listvinafélag Hallgrímskirkju. Prófessor Radulescu kenndi í þrjá daga, tveir voru fyrir nemendur og starfsfólk skólans en sá þriðji opinn öllum organistum, var þetta námskeið styrkt sérstaklega af FÍO. Prófessor Radulescu kom einnig fram á þrennum tónleikum, hann lék á orgeltónleikum bæði í Langholtskirkju og í Hallgrímskirkju auk þess þá stjórnaði hann á kantötutónleikum í Langholtskirkju. Það var einstakt að fá að kynnast þessum mikla meistara bæði sem listamanni og ekki síður sem manneskju, en það var einmitt hin mannlega hlýja sem auk hins djúpa listfengis sem snerti hvað mest við að fá kynnast þesssum stóra listamanni.

Prófessor Radulescu kennir Tómasi Guðna Eggertssyni nemanda við Tónskólann