Skólaslit Tónskólans
Skólaslit Tónskóla Þjóðkirkjunnar fóru fram í Hallgrímskirkju föstudaginn 25. maí s.l. Að þessu sinni var ríkuleg uppskera þar sem sjö nemendur luku áfanga frá skólanum. Það voru þau; Gunnhildur Baldursdóttir, Hannes Baldursson, Julian Edward Isaacs, Kári Allansson og Lilja Eggertsdóttir luku kirkjuorganistaprófi, Arngerður María Árnadótttir lauk kantorsprófi og Tómas Guðni Eggertsson lauk einleiksáfanga. Er þeim öllum óskað til hamingju með áfangann og bjartrar framtíðar á akri kirkjutónlistarinnar.

útskriftarnemarnir ásamt Birni Steinari Sólbergssyni, skólastjóra og sr. Jóni Helga Þórarinssyni, formanni skólanefndar.


