Námskeið um Dieterich Buxtehude
Dieterich Buxtehude – námskeið, orgelkennsla, fyrirlestrar og orgelandakt.
Dagana 5. og 6. nóvember stendur Tónskóli Þjóðkirkjunnar fyrir námskeiði í Langholtskirkju þar sem Eyþór Ingi Jónsson, organisti við Akureyrarkirkju fjallar um tónskáldið Dieterich Buxtehude í kennslu- og fyrirlestraformi. 8 nemendur skólans koma fram í kennslustundum og við orgelandakt auk þess sem Eyþór Ingi heldur tvo fyrirlestra um tónskáldið.
Námskeiðið er opið öllum nemendum Tónskólans og organistum og er sérstaklega bent á orgelandaktirnar og fyrirlestrana. sjá nánar fyrirkomulag námskeiðsins hér
Eyþór Ingi Jónsson er organisti við Akureyrarkirkju, kennir við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Tónlistarskólann á Akureyri og hefur kennt námskeið í Barrokktónlist. Hann lauk kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar og hefur síðan stundað framhaldsnám við Tónlistarháskólann í Piteå, hjá Hans-Ola Ericsson, Gary Verkade og Erik Westberg.



