Jólatónleikar Tónskólans
Tvennir tónleikar verða á vegum Tónskólans fyrir jólin.
Annars vegar jólatónleikar þar sem fram koma fram lengst komnu orgelnemendur skólans, kórstjórnarkórinn og kórstjórnarnemar. Auk þess koma fram söngnemendur með kórnum. Þessir tónleikar verða laugardaginn 8. desember kl. 17 í Langholtskirkju. Hins vegar verða orgeltónleikar þar sem aðrir orgelnemendur skólans koma fram og verða þeir tónleikar einnig í Langholtskirkju föstudaginn 14. desember kl. 17.


