Hjálparnámskeið á vegum Tónskólans


Tónskólinn hefur á undanförnum 2 árum staðið fyrir hjálparnámskeiði fyrir þá erlendu organista sem lítið þekkja til hefða íslensku þjóðkirkjunnar og e.t.v. líka íslenska organista sem ekki hafa haft tækifæri til að afla sér mikillar menntur á þessu sviði.

Nú hefur verið ákveðið að bjóða upp á stutt námskeið fyrir þetta fólk.

Um er að ræða eins dags námskeið sem haldið verður í Grensáskirkju föstudaginn 29. febrúar 2008. Kennari verður Guðný Einarsdóttir, organisti Fella- og Hólakirkju.

Á námskeiðinu verður farið í:

a) Innsýn í kirkjuárið, helgisiði og kirkjulegar athafnir

b) Sögulegt yfirlit messusöngs á Íslandi

c) Íslenska sálmabókin. Farið yfir algengustu sálma, þeir leiknir og sungnir og veitt innsýn í hefðir íslensku kirkjunnar varðandi val á sálmum og flutning þeirra.

d) Farið verður yfir Messu I og II. Messurnar sungnar og leiknar. Kynnig á Hátíðarsöngvum sr. Bjarna Þorsteinssonar.

Námgögn innifalin í námskeiðsgjaldi:

Messa I með sígildu tónlagi

Messa II – Messusvör Sigfúsar Einarssonar

Hátíðasöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar (óbreyttir, lækkaðir um hálftón og lækkaðir um heiltón). Einnig sérhefti fyrir hverja athöfn með hátíðasöngvum sr. Bjarna, svo sem: Aftansöngur á aðfangadagskvöld, Messa utan hátíða o.fl. (gefið út af Söngmálastjóra).

Þátttakendur þurfa að hafa með sér sálmabók (útgefin 1997) og sálmasöngsbók (útgefin 1997).

Námskeiðsgjald er kr. 12.000 og er von okkar að sem flestir sem á þurfa að halda sjái sér fært að koma.