Námskeið í litúrgískum orgelleik
![]()
Spunameistarinn Hannfried Lucke heldur námskeið fyrir nemendur Tónskólans í litúrgískum orgelleik II og III í Hallgrímskirkju dagana 14. apríl frá 13-16 og 15. apríl frá 10-12 og 13-15. Námskeiðið er opið áheyrendum og allir velkomnir. Hann kemur jafnframt fram á tónleikum Listvinafélags Hallgrímskirkju undir yfirskriftinni Töfrar orgelsins laugardaginn 12. apríl kl. 14 og í Grindavíkurkirkju sunnudagskvöldið 13. apríl kl. 20. Þar mun hann leika verk meistara orgeltónbókmenntanna auk þess sem hann mun leika af fingrum fram um gefin stef.
Hannfried Lucke ólst upp í Freiburg í Suður-Þýskalandi og hlaut tónlistarmenntun sína við Ríkistónlistarháskólann í Freiburg, við Salzburg Mozarteum í Austurríki og við Tónlistarhá¬skólann í Genf. Hann útskrifaðist í kirkjutónlist og með einleikarapróf. Árin 1989-91 var hann styrkþegi Þýska háskólaskiptinemasjóðsins. Árið 1991 hlaut hann heiðursverðlaun austurríska menntamálaráðherrans og 1993 fyrstu verðlaun Tónlistarháskólans í Genf.
Tónleikar og upptökur hafa borið Hannfried Lucke víða, til flestra landa Evrópu, Banda¬ríkjanna, Kanada, Japan, Hong Kong og Ástralíu. Hljóðritanir hans hafa hlotið alþjóðlegar viðurkenningar. Árið 2000 lauk hann m.a. upptökum á öllum orgelverkum Johanns Sebastians Bachs.
Árið 1997 tók hann við stöðu prófessors í orgelleik við Tónlistar- og listaháskólann í Graz í Austurríki og árið 2000 var hann skipaður yfirmaður orgeldeildar Tónlistarháskólans Salz¬burg Mozarteum. Þá er hann oft dómari í orgelkeppnum auk þess sem hann heldur meistaranámskeið bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum.



