Mattias Wager kennir í Skálholti

Tónskólinn tekur þátt í organistanámskeiði Söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar í Skálholti dagana 18.-20. ágúst með námskeiði Mattiasar Wager í litúrgískum orgelleik. 6 nemendur verða virkir en námskeiðið er öllum opið.
Kennsla í litúrgískum orgelleik leggur áherslu á guðsþjónustuna, orgelundirleik við almennan safnaðarsöng, gerð stuttra forspila og frjálsan spuna. Valdir verða þekktir sálmar sem falla vel til almenns söngs, svo og nýir sálmar. Kennslan skiptist í hóptíma þar sem sýndir verða ótal möguleikar á útfærslu sálmaundirleiks og sálmaforspila, og einstaklingskennslu, þar sem virkir þátttakendur fá einkatíma. Kennslan fer fram við Frobeniusarorgel Skálholtskirkju.

Leiðbeinandi er Mattias Wager organisti dómkirkjunnar í Stokkhólmi.