Orgelnámsferð á slóðir Bachs!
Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar í samvinnu við Félag Íslenskra Organleikara og Tónskóla þjóðkirkjunnar stendur fyrir námsferð íslenskra organista á slóðir Bachs
undir handleiðslu prófessors Hans-Dieter Möller 16.-23. Október 2008.
Markmið ferðarinnar er að kynnast sögufrægum orgelum í Saxlandi, í nágrenni við helstu áfangastaði Johanns Sebastian Bachs.
Ferðalýsing í stórum dráttum:
Flogið verður til Berlínar þann 16. október kl. 08:00 og lent kl. 13:15 að staðartíma. Þar verður skoðað hið mikla Sauerorgel í Dómkirkjunni í Berlín og orgel Amalíu prinsessu í Berlín-Karlhorst, en fyrir það hljóðfæri skrifaði Bachsonurinn Carl Philipp Emanuel orgelsónötur sínar. Það gefst kostur á að koma við í Potsdam til að skoða hallirnar þar og hina undurfögru Friðarkirkju í Sanssouci-garðinum, en hún státar af mjög fallegu orgeli sem Gerald Woehl smíðaði.
Í Leipzig verða Bachkirkjurnar Tómasarkirkjan með Sauer- og Woehl-orgelum, svo og Nikúlásarkirkjan með endurgerðu Ladegast-orgeli heimsóttar. Skammt frá Leipzig er Rötha, þar sem fyrirfinnast tvö Gottfried Silbermann orgel og þar við hliðina er Altenburg með hinu fræga Trost-orgeli, þar sem Joh. Ludw. Krebs var organisti.
Í Frauenstein er hið athyglisverða Silbermannsafn og ekki langt undan Dómkirkjan í Freiberg með sínu stóra Silbermannorgeli.
Í Naumburg stendur endurgert Hildebrandt-orgel í Kirkju heilags Wenzels.
Auk þess er stefnt að því að heimsækja Erfurt, Arnstadt og Dresden.
Prófessor Hans-Dieter Möller hefur verið kennari í orgelleik og litúrgískum orgelleik við Kirkjutónlistardeild Robert Schumann tónlistarháskólans í Düsseldorf í mörg ár. Á meðal nemenda hans þar eru tveir íslenskir organistar Hörður Áskelsson og Kári Þormar. Hann hafði m.a. á höndum kennslu í orgelfræðum en liður í kennslu hans í því fagi voru orgelskoðunarferðir á helstu staði í sögu orgelsins. Möller er mjög fróður um allt er lítur að orgeli og orgeltónlist og því mikill fengur að fá hann til að leiðbeina íslenskum organistum og orgelnemum í orgelskoðunarferð um slóðir sem hann gjörþekkir.


