Hjálparnámskeið á vegum Tónskólans
Á undanförnum árum hefur Tónskólinn staðið fyrir hjálparnámskeiðum fyrir þá erlendu organista sem lítið þekkja til hefða íslensku þjóðkirkjunnar og e.t.v. líka íslenska organista sem ekki hafa haft tækifæri til að afla sér mikillar menntunar á þessu sviði.
Mánudaginn 27. apríl n.k. verður haldið hjálparnámskeið í Grensáskirkju. Námskeiðið verður í umsjón Guðmundar Sigurðssonar, organista Hafnarfjarðarkirkju og kennara við Tónskólann.
Á námskeiðinu verður farið í:
a) Innsýn í kirkjuárið, helgisiði og kirkjulegar athafnir
b) Sögulegt yfirlit messusöngs á Íslandi
c) Íslenska sálmabókin. Farið yfir algengustu sálma, þeir leiknir og sungnir og veitt innsýn í hefðir íslensku kirkjunnar varðandi val á sálmum og flutning þeirra.
d) Farið verður yfir Messu I og II. Messurnar sungnar og leiknar. Kynnig á Hátíðarsöngvum sr. Bjarna Þorsteinssonar.
Námgögn innifalin í námskeiðsgjaldi:
Messa I með sígildu tónlagi
Messa II – Messusvör Sigfúsar Einarssonar
Hátíðasöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar (óbreyttir, lækkaðir um hálftón og lækkaðir um heiltón). Einnig sérhefti fyrir hverja athöfn með hátíðasöngvum sr. Bjarna, svo sem: Aftansöngur á aðfangadagskvöld, Messa utan hátíða o.fl. (gefið út af Söngmálastjóra).
Þátttakendur þurfa að hafa með sér sálmabók (útgefin 1997) og sálmasöngsbók (útgefin 1997).



