Vortónleikar Kirkjutónlistarbrautar

Tónleikar kirkjutónlistarbrautar Listaháskóla Íslands og Tónskóla Þjóðkirkjunnar verða í Hallgrímskirkju mánudaginn 11. maí kl. 18. Á tónleikunum koma fram þeir Eyþór Franzson Wechner og Kári Allansson. Flutt verða verk eftir Johann Sebastian Bach, Felix Mendelssohn-Bartholdy, César Franck og Léon Boëllmann.