Vortónleikar Tónskólans
Vortónleikar Tónskóla Þjóðkirkjunnar verða í Langholtskirkju laugardaginn 16. maí kl. 18. Þar koma fram nemendur skólans í orgelleik og kórstjórn auk kórs Tónskólans. Aðalverkefni tónleikanna verður Requiem eftir Gabriel Fauré sem kórstjórnarnemendur stjórna. Auk þess verða flutt orgelverk eftir Johann Sebastian Bach, Felix Mendelssohn-Bartholdy og Jaques-Nicolas Lemmens.


