Jólatónleikar Tónskólans 2009
Tvennir tónleikar verða á vegum Tónskóla Þjóðkirkjunnar nú fyrir jólin.
10. desember kl. 20 verða tónleikar í Langholtskirkju þar sem fram koma Eyþór Franzson Wechner og Kári Allansson, nemendur Tónskólans og Listaháskóla Íslands á kirkjutónlistarbraut. Á tónleikunum flytja þeir Eyþór og Kári verk eftir Johann Sebastian Bach, Dietrich Buxtehude, Felix Mendelssohn-Bartholdy og Jean Langlais.
11. desember kl. 17 verða svo tónleikar í Langholtskirkju þar sem orgelnemendur Tónskólans leika á orgel kirkjunnar verk tengd aðventu og jólum eftir m.a. Johann Sebastian Bach, Dietrich Buxtehude og Felix Mendelssohn-Bartholdy. Einnig koma fram nemendur skólans í litúrgískum orgelleik.


