Umsóknarfrestur fyrir kirkjutónlistarnám í Listaháskóla Íslands
Umsóknarfrestur fyrir kirkjutónlistarnám til BA-gráðu í tónlistardeild Listaháskóla Íslands fyrir veturinn 2010-2011 rennur út 15. mars n.k. Inntökuskilyrði fyrir námið er Kirkjuorganistapróf frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar eða sambærileg menntun auk inntökuprófs. Skipulag námsins má sjá hér.
Allar nánari upplýsingar gefa Björn Steinar Sólbergsson, skólastjóri Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Mist Þorkelsdóttir, deildarforseti tónlistardeildar LHÍ.



