Tónskólamessa

Þann 26. apríl næstkomandi verður haldin „Tónskólamessa“ í Langholtskirkju þar sem séra Jón Helgi Þórarinsson messar.
Þar munu nemendur skólans í kórstjórn, orgelleik og litúrgískum orgelleik skipta með sér hlutverkum í messunni.

Í tengslum við messuna mun Þröstur Eíríksson, kennari skólans í Sálma & Helgisiðafræði halda fyrirlestur sem ber yfirskriftina „Tónlistin í Guðsþjónustinni“. Þröstur er jafnframt hugmyndafræðingur Tónskólamessunnar og mun kynna efnið sem þar verður flutt.

Messan er hefðbundin gregormessa. Fluttar verða móttettur og sálmar er tengjast kirkjuárinu (Páskatímanum). Einnig verður kór- og orgelspuni.