Útskriftartónleikar Kirkjutónlistarbrautar
Útskriftartónleikar kirkjutónlistarbrautar Listaháskóla Íslands og Tónskóla Þjóðkirkjunnar verða í Hallgrímskirkju þriðjudaginn 11. maí kl. 17.
Á tónleikunum leikur Kári Allansson verk eftir Louis-Nicolas Clérambault, César Franck, Ad Wammes, Magnús Blöndal Jóhannsson, Dietrich Buxtehude og Johann Sebastian Bach.
Þessir tónleikar eru liður í útskrift Kára af kirkjutónlistarbraut til BA-gráðu og eru sögulegir þar sem Kári er fyrsti nemandinn sem líkur þessum áfanga.
Kári líkur nú í vor jafnframt Kantorsprófi frá Tónskólanum.



