Skólaslit Tónskóla Þjóðkirkjunnar
Skólaslit Tónskólans verða í Hallgrímskirkju föstudaginn 21. maí kl. 17. Tíu nemendur ljúka áfanga frá skólanum nú í vor. Það eru þau Arnhildur Valgarðsdóttir, Ave Tonisson, Drífa Sigurðardóttir, Judith Þorbergsson, Ólafur W. Finnsson og Sigurður Jónsson sem ljúka kirkjuorganistaprófi. Helga Þórdís Guðmundsdóttir, Kári Allansson og Petra Björk Pálsdóttir ljúka kantorsprófi. Kári er einnig fyrsti nemandinn sem líkur jafnframt BA-gráðu í kirkjutónlist frá Listaháskóla Íslands. Sveinn Arnar Sæmundsson líkur einleiksáfanga.


