Skólaslit Tónskóla Þjóðkirkjunnar
Skólaslit Tónskólans verða í Hallgrímskirkju föstudaginn 20. maí kl. 17. Sex nemendur ljúka áfanga frá skólanum nú í vor. Það eru þau Anna Alexandra Klosiak, Steinunn Árnadóttir og Sveinn Ingi Reynisson sem ljúka kirkjuorganistaprófi. Örn Magnússon lýkur kantorsprófi. Helga Þórdís Guðmundsdóttir og Kári Allansson ljúka einleiksáfanga.



