Sex útskrifast frá Tónskóla þjóðkirkjunnar
Skólaslit Tónskóla þjóðkirkjunnar fóru fram Hallgrímskirkju föstudaginn 20. maí s.l. Sex nemendur luku áfanga frá skólanum. Það eru þau Anna Alexandra Klosiak, Steinunn Árnadóttir og Sveinn Ingi Reynisson sem ljúka kirkjuorganistaprófi. Örn Magnússon lýkur kantorsprófi. Helga Þórdís Guðmundsdóttir og Kári Allansson ljúka einleiksáfanga.




