Nýr skólastjóri tekur til starfa

Skólastjórn hefur ákveðið að ráða Björn Steinar Sólbergsson til eins árs í starf skólastjóra í stað Kristins Arnar Kristinssonar sem óskaði ekki eftir að framlengja sinn ráðningarsamning.

Greinargerð – framtíðarhugmyndir um skipan kirkjutónlistarnáms

Skólastjóri hefur í samráði við skólastjórn sett fram greinargerð um framtíðarskipan kirkjutónlistarnáms, bæði með tilliti til framtíðarskipulags Tónskólans og æskilegs samstarfs við Listaháskóla Íslands í náinni framtíð. Þessar hugmyndir hafa þegar verið kynntar biskupi og kirkjuráði og fengið jákvæða umfjöllun. Einnig hafa þær verið ræddar við stjórnendur Listaháskóla Íslands og sendar til Menntamálaráðuneytisins.

Skólaslit 2006

Skólaslit verða miðvikudaginn 24. maí, kl. 16.00 í Hallgrímskirku.

Söngstund með Sindre Eide

Sindre Eide mun kynna trúarlega æskulýðssönga frá ýmsum heimshornum í safnaðarheimili Grensáskirkju kl. 17.0 – 19.00 fimmtudaginn 11. maí. Fyrir alla sem koma að tónlistarstarfi í kirkjunni!

Vortónleikar Tónskólans 2006

Þrennir vortónleikar nemenda verða á vegum Tónskólans að þessu sinni, 12.,13. og 14. maí. Fjölbreytt efni verður flutt og aðgangur er öllum heimill ókeypis!

Lesa áfram

Námskeið fyrir stjórnendur barnakóra

Námskeið verður haldið í Skálholti dagana 8.-10 ágúst 2006, fyrir barnakórstjóra. Tema námskeiðsins verða helgisöngleikir fyrir börn og aðalleiðbeinandi verður danski kompónistinn og kórstjórinn John Høybye

Námskeið í orgeltónlist barrokk og endurreisnar

Námskeið verður mánudaginn 3. apríl kl. 10.00-14.00 í Langholtskirkju þar sem þeir Eyþór Ingi Jónsson og Lars Sjöstedt munu leiða þátttakendur um leyndardóma orgeltónlistar frá tímum barrokks og endurreisnar.

Lesa áfram

Söngtónleikar nemenda Tónskólans

Nemendatónleikar verða í Neskirkju laugardaginn 25. mars kl. 14.30. Þar koma fram nemendur Tónskólans sem eru í söng og raddþjálfun hjá Jóni Þorsteinssyni og flytja fjölbreytta söngdagskrá. Meðal annars verða flutt samsöngsatriði úr Sálumessu Mozarts. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill!

Námskeið í kórstjórn á Austurlandi

Á næstunni verður námskeið í kórstjórn fyrir núverandi og verðandi organista, og annað tónlistarfólk, á Austurlandi.

Lesa áfram

Kórstjórnarnemar á námskeiði

Dagana 14. og 15. febrúar stendur yfir námskeið í kórstjórn þar sem nemar Tónskólans njóta leiðsagnar Guðmundar Óla Gunnarssonar.

Lesa áfram