Tónskóli Þjóðkirkjunnar verður settur í Grensáskirkju miðvikudaginn 31. ágúst kl. 15.00. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þann 5. september.
Upphaf skólastarfsTónskóli Þjóðkirkjunnar verður settur í Grensáskirkju miðvikudaginn 31. ágúst kl. 15.00. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þann 5. september. Námskeið David Sanger á kirkjulistahátíðHinn þekkti konsertorganisti og kennari, David Sanger, verður með meistaranámskeið í orgelleik á Kirkjulistahátíð í samvinnu við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Félags íslenskra organleikara. Tónskólinn tók þátt í kirkjudögumTónskólinn var með sýningarbás á kirkjudögum, auk þess sem nemendur komu fram við ýmis tækifæri. Skólaslit 2005Tónskólanum var slitið þann 25. maí síðastliðinn. Við það tækifæri voru fluttir þættir úr Mozart Requem undir stjórn kórstjórnarnema á 3. ári. Vortónleikar og skólaslitTvennir vortónleikar eru á döfinni vor og auk þess verður flutt Fauré Requiem við skólaslit. Gjöf til TónskólansSkólanum hefur borist að gjöf Johannus rafmagnsorgel með tveim spilaborðum og pedal til æfinga. Guðrún Tómasdóttir 80 áraGuðrún Tómasdóttir varð áttræð þann 13 apríl síðastliðinn. Velheppnað námskeið í kórstjórnNú er nýlokið námskeiði Anders Eby í kórstjórn. Námskeiðið var sérlega velheppnað. Tónleikar söngnemaNemendur Tónskólans koma fram á söngtónleikum í Grensáskirkju, sunnudaginn 10. apríl kl. 16.00. Söngkennari þeirra er Jón Þorsteinsson. Sungnir verða sálmar og andleg ljóð, ásamt sönglögum eftir Brahms, Árna Thorsteinsson, Björgvin Guðmundsson, Sigfús Einarsson og fleiri. Tónleikarnir eru hluti af vorprófum nemenda. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Námskeið í kórstjórnSænski kórstjórinn Anders Eby verður með masterklass í kórstjórna dagana 14. og 15. apríl næstkomandi. |
|||||