Sú breyting hefur orðið að Hörður Áskelsson hefur tekið leyfi frá kennslustörfum í vetur. Í stað hans hefur verið fenginn til starfa Björn Steinar Sólbergsson.
Námsgreinar og kennarar.Sú breyting hefur orðið að Hörður Áskelsson hefur tekið leyfi frá kennslustörfum í vetur. Í stað hans hefur verið fenginn til starfa Björn Steinar Sólbergsson. Námskeið fyrir kórstjóra og organistaNámskeið fyrir kórstjóra og organista var haldið á vegum Tónskóla þjóðkirkjunnar í Skálholti, 1.-14. ágúst sl. Kennarar voru Guðmundur Óli Gunnarsson, stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands sem kenndi hljómsveitarstjórn fyrir byrjendur og Carola Bischoff, kórstjóri frá Neustadt í Þýskalandi, en hún leiðbeindi um möguleika til leikrænnar tjáningar og látbragðs í flutningi kórtónlistar. Ráðning skólastjóraÁ fundi sínum þann 11. júní 2003 staðfesti kirkjuráð tillögu skólastjórnar Tónskóla þjóðkirkjunnar um að ráða Kristinn Örn Kristinsson í starf skólastjóra skólans frá og með 1. júlí 2003. Lagt er til að ráðningin verði tímabundin og miðist við þrjú ár, en Kristinn hefur gegnt því starfi s.l. tvö ár. Meistaranámskeið, fyrirlestur og tónleikar í Langholtskirkju.Í samstarfi við Kirkjulistahátíð Hallgrímskirkju og Félag íslenskra organleikara verður haldið Meistaranámskeið fyrir organista í túlkun barrokkverka. Staða skólastjóra við Tónskóla Þjóðkirkjunnar laus til umsóknarStjórn Tónskóla Þjóðkirkjunnar hefur auglýst starf skólastjóra við Tónskóla Þjóðkirkjunnar laust til umsóknar. Tónskólans. Ráðið verður í starfið frá 1. júlí 2003. Meistaranámskeið Daniel RothHinn þekkti franski organisti Daniel Roth var með opið námskeið fyrir nemendur Tónskólans og starfandi organista föstudaginn 24. janúar og laugardaginn 25. janúar 2003. Hann hélt tónleika á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju kl. 17.00 sunnudaginn 26. janúar. Námskeiðið var haldið í samvinnu við Félag íslenskra organleikara. Bókasafn Sigurðar Ísólfsonar (2003)Bókasafn Sigurðar Ísólfssonar sem er eign Félags íslenskra organleikara, hefur nú verið skráð og afhent bókasafni Tónskólans í merktum öskjum. Skráningin var unnin sem lokaverkefni í bókasafns- og upplýsingafræði við HÍ. Fjarnám í almennri kirkjufræði (2003)Grunnkúrs í almennri kirkjufræði er ný námsgrein samkvæmt námskrá Tónskólann sem fyrst var kennd nú á haustönn 2002. Fyrsta önnin var leiðsögn um Nýja testamentið sem Sr. Hreinn Hákonarson hefur kennt. Námskeið í hljómsveitarstjórnÁætlað er að halda námskeið í hljómsveitarstjórn í mars. Leiðbeinandi er Bernharður Wilkinson. Námskeiðið er fyrir nemendur Tónskólans og starfandi organista. Netskóli tónskólans (haust 2002)Stofnað hefur verið svæði fyrir Tónskóla Þjóðkirkjunnar hjá Netskólanum. Áætlað er að gera tilraun með notkun hans á næstu önn við kennslu í orgelfræði og kennslu í grunnkúrs kirkjunnar um biblíufræði. |
|||||