Tvö námskeið eru í gangi í fjarkennslu, kirkjusöngfræði I og orgelfræði. Tíu nemendur eru skráðir í kirkjusöngfræði og fimm í orgelfræði, og eru nemendur víðasvegar á landinu. Kennari er Smári Ólason. Námið fer fram á Netskólasvæði Tónskólans
Námskeið í fjarkennsluTvö námskeið eru í gangi í fjarkennslu, kirkjusöngfræði I og orgelfræði. Tíu nemendur eru skráðir í kirkjusöngfræði og fimm í orgelfræði, og eru nemendur víðasvegar á landinu. Kennari er Smári Ólason. Námið fer fram á Netskólasvæði Tónskólans Námskeið í litúrgískum orgelleik og spunaMattias Wager var með námskeið í litúrgísku orgelspili og spuna í Hallgrímskirkju 27.-29. febrúar. Þetta er þriðja árið í röð sem Mattias heimsækir Tónskóla Þjóðkirkjunnar og miðlar af þekkingu sinni. EinleikaraprófstónleikarSunnudaginn 14. desember 2003 kl. 16.00 flutti Sigrún Magna Þórsteinsdóttir einleiksefnisskrá á orgel Hallgrímskirkju. NemendatónleikarHádegistónleikar í Langholtskirkju Nemendatónleikar voru í Langholtskirkju föstudaginn 12. desember kl. 12.00. Tvö námskeiðTvö námskeið verða haldin á vegum Tónskólans fyrir nemendur og organista í starfi. Fyrra námskeiðið er um hvernig hægt er að flytja léttu lögin smekklega á orgel og leika undir söng og verður í nóvember. Leiðbeinandi er Jónas Þórir Þórisson. Hið síðara fjallar um flutningsmáta barroktónlistar og leiðbeinandi er Eyþór Ingi Jónsson. Ráðstefna um tónlistarmál kirkjunnarRáðstefna var haldin um tónlistarmnál kirkjunnar föstudaginn 26. september í Grensáskirkju. Ráðstefnan hófst kl. 15.00 og lauk kl. 21.00. Ráðstefnan var haldin á vegum Prestafélags Íslands, Félags íslenskra organleikara, Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Guðfræðideildar, og voru fulltrúar þessarra aðila með stutta framsögu. Umræður voru fjörugar og skemmtilega ólík sjónarhorn komu fram. Tillaga að kirkjutónlistarstefnuStjórn tónskólans hefur lagt fram tillögu að kirkjutónlistarstefnu. Hún hefur verið send helstu hagsmunaaðilum til umsagnar… Námsgreinar og kennarar.Sú breyting hefur orðið að Hörður Áskelsson hefur tekið leyfi frá kennslustörfum í vetur. Í stað hans hefur verið fenginn til starfa Björn Steinar Sólbergsson. Námskeið fyrir kórstjóra og organistaNámskeið fyrir kórstjóra og organista var haldið á vegum Tónskóla þjóðkirkjunnar í Skálholti, 1.-14. ágúst sl. Kennarar voru Guðmundur Óli Gunnarsson, stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands sem kenndi hljómsveitarstjórn fyrir byrjendur og Carola Bischoff, kórstjóri frá Neustadt í Þýskalandi, en hún leiðbeindi um möguleika til leikrænnar tjáningar og látbragðs í flutningi kórtónlistar. Ráðning skólastjóraÁ fundi sínum þann 11. júní 2003 staðfesti kirkjuráð tillögu skólastjórnar Tónskóla þjóðkirkjunnar um að ráða Kristinn Örn Kristinsson í starf skólastjóra skólans frá og með 1. júlí 2003. Lagt er til að ráðningin verði tímabundin og miðist við þrjú ár, en Kristinn hefur gegnt því starfi s.l. tvö ár. |
|||||