Hádegistónleikar í Langholtskirkju
Nemendatónleikar voru í Langholtskirkju föstudaginn 12. desember kl. 12.00.
Þar léku nemendur á orgelið og einnig voru flutt söngatriði.
NemendatónleikarHádegistónleikar í Langholtskirkju Nemendatónleikar voru í Langholtskirkju föstudaginn 12. desember kl. 12.00. Tvö námskeiðTvö námskeið verða haldin á vegum Tónskólans fyrir nemendur og organista í starfi. Fyrra námskeiðið er um hvernig hægt er að flytja léttu lögin smekklega á orgel og leika undir söng og verður í nóvember. Leiðbeinandi er Jónas Þórir Þórisson. Hið síðara fjallar um flutningsmáta barroktónlistar og leiðbeinandi er Eyþór Ingi Jónsson. Ráðstefna um tónlistarmál kirkjunnarRáðstefna var haldin um tónlistarmnál kirkjunnar föstudaginn 26. september í Grensáskirkju. Ráðstefnan hófst kl. 15.00 og lauk kl. 21.00. Ráðstefnan var haldin á vegum Prestafélags Íslands, Félags íslenskra organleikara, Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Guðfræðideildar, og voru fulltrúar þessarra aðila með stutta framsögu. Umræður voru fjörugar og skemmtilega ólík sjónarhorn komu fram. Tillaga að kirkjutónlistarstefnuStjórn tónskólans hefur lagt fram tillögu að kirkjutónlistarstefnu. Hún hefur verið send helstu hagsmunaaðilum til umsagnar… Námsgreinar og kennarar.Sú breyting hefur orðið að Hörður Áskelsson hefur tekið leyfi frá kennslustörfum í vetur. Í stað hans hefur verið fenginn til starfa Björn Steinar Sólbergsson. Námskeið fyrir kórstjóra og organistaNámskeið fyrir kórstjóra og organista var haldið á vegum Tónskóla þjóðkirkjunnar í Skálholti, 1.-14. ágúst sl. Kennarar voru Guðmundur Óli Gunnarsson, stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands sem kenndi hljómsveitarstjórn fyrir byrjendur og Carola Bischoff, kórstjóri frá Neustadt í Þýskalandi, en hún leiðbeindi um möguleika til leikrænnar tjáningar og látbragðs í flutningi kórtónlistar. Ráðning skólastjóraÁ fundi sínum þann 11. júní 2003 staðfesti kirkjuráð tillögu skólastjórnar Tónskóla þjóðkirkjunnar um að ráða Kristinn Örn Kristinsson í starf skólastjóra skólans frá og með 1. júlí 2003. Lagt er til að ráðningin verði tímabundin og miðist við þrjú ár, en Kristinn hefur gegnt því starfi s.l. tvö ár. Meistaranámskeið, fyrirlestur og tónleikar í Langholtskirkju.Í samstarfi við Kirkjulistahátíð Hallgrímskirkju og Félag íslenskra organleikara verður haldið Meistaranámskeið fyrir organista í túlkun barrokkverka. Staða skólastjóra við Tónskóla Þjóðkirkjunnar laus til umsóknarStjórn Tónskóla Þjóðkirkjunnar hefur auglýst starf skólastjóra við Tónskóla Þjóðkirkjunnar laust til umsóknar. Tónskólans. Ráðið verður í starfið frá 1. júlí 2003. Meistaranámskeið Daniel RothHinn þekkti franski organisti Daniel Roth var með opið námskeið fyrir nemendur Tónskólans og starfandi organista föstudaginn 24. janúar og laugardaginn 25. janúar 2003. Hann hélt tónleika á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju kl. 17.00 sunnudaginn 26. janúar. Námskeiðið var haldið í samvinnu við Félag íslenskra organleikara. |
|||||