Vortónleikar skólans voru þriðjudaginn 21. maí 2002 kl. 18.00 í Hallgrímskirkju.
VortónleikarVortónleikar skólans voru þriðjudaginn 21. maí 2002 kl. 18.00 í Hallgrímskirkju. Skólaslit 2002Skólaslit 2002 voru föstudaginn 24. maí kl. 17.00 í Grensáskirkju. Námskeið í litúrgískum spunaMattias Wager var með námskeið í litúrgískum spuna fyrir nemendur Tónskólans 2.-4. maí í Hallgrímskirkju. Þetta var þriðja námskeið hans í vetur. NemendatónleikarNemendatónleikar Tónskólans voru haldnir í Langholtskirkju föstudaginn 15. mars kl. 12.00. Sálmasöngur og spuniSunnudaginn 5. maí kl. 17.00 var opinn sálmasöngur í Hallgrímskirkju, þar sem nemendur skólans léku af fingrum fram og leiddu söng. Dagskráin var í samvinnu við Listvinafélag Hallgrímskirkju. Á dagskrá sálmaveislunnar var spuni í kring um kunn sálmalög og messusöngva. Mattias Wager kemur afturMattias Wager kemur aftur í maí og verður með námskeið dagana 2. -4. maí. Mattias Wager heldur námskeið við TónskólannMatthias Wager hélt námskeið í litúrgísku orgelspili dagana 31. janúar – 2. febrúar. Skólasetning Tónskóla ÞjóðkirkjunnarTónskóli Þjóðkirkjunnar var settur í Grensáskirkju þann 1. september síðastliðinn. Um tuttugu nemendur stunda nú nám við skólann. Námskeið Hans-Ola ErikssonHans-Ola Eriksson var með meistarakúrs í orgelleik dagana 10. -12. janúar 2002 í Hallgrímskirkju. Orgelfræði í fjarnámiVerkmenntaskólinn á Akureyri býður fjarnám í orgelfræði (orgelsmíði) á vorönn 2002 í samvinnu við Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Kennari er Smári Ólason. Námsáfanginn er metinn til tveggja framhaldskólaeininga. Fimm nemendur hafa skráð sig í þennan áfanga. |
|||||