Umsóknarfrestur fyrir kirkjutónlistarnám í Listaháskóla Íslands

Umsóknarfrestur fyrir kirkjutónlistarnám til BA-gráðu í tónlistardeild Listaháskóla Íslands rennur út 27. mars n.k. Inntökuskilyrði fyrir námið er Kirkjuorganistapróf frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar eða sambærileg menntun auk inntökuprófs. Skipulag námsins má sjá hér.
Allar nánari upplýsingar gefa Björn Steinar Sólbergsson, skólastjóri Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Mist Þorkelsdóttir, deildarforseti tónlistardeildar LHÍ.

Messe des Paroisses í Akureyrarkirkju

Nemendur Akureyrardeildar Tónskóla Þjóðkirkjunnar flytja stærri orgelmessu franska barokktónskáldsins François Couperin, Messe des Paroisses, á tónleikum í Akureyrarkirkju miðvikudaginn 18. mars kl. 20. Nemendurnir 6 skipta köflunum 23 á milli sín. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir

Skóladagatal

Hér kemur skóladagatalið uppfært fyrir vorönn.

Námskeið í kórstjórn

Dagana 7. – 20. janúar stendur yfir námskeið fyrir kórstjórnarnemendur Tónskólans.
Það er Stan Engebretson, prófessor við George Washington háskólann í Washington sem kennir. Hann er jafnframt listrænn stjórnandi kórs National Philharmonic sinfóníuhljómsveitarinnar og organisti við New York Avenue Presbeterian kirkjuna í sömu borg.
Námskeiðinu líkur svo með opnum tónleikum í Grensáskirkju mánudaginn 19. janúar n.k. kl. 20. þar koma fram kór Tónskólans og nemendur í kórstjórn.

Jólafrí Tónskólans

Jólafrí nemenda og starfsfólks Tónskólans verður frá og með mánudeginum 15. desember. Kennsla hefst aftur miðvikudaginn 7. janúar 2009.
Starfsfólk Tónskólans óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!

Jólatónleikar Tónskólans 2008

Tvennir tónleikar verða á vegum Tónskóla Þjóðkirkjunnar nú fyrir jólin.
27. nóvember kl. 18 verða tónleikar í Langholtskirkju þar sem fram koma Eyþór Franzson Wechner og Kári Allansson, nemendur Tónskólans og Listaháskóla Íslands á kirkjutónlistarbraut. Á tónleikunum verða flutt verk eftir Johann Sebastian Bach, Dietrich Buxtehude, César Franck og Léon Boëllmann.
5. desember kl. 18 verða svo tónleikar í Hafnarfjarðarkirkju þar sem orgelnemendur Tónskólans leika á hið nývígða orgel kirkjunnar verk eftir Johann Sebastian Bach, Felix Mendelssohn-Bartholdy, Marcel Dupré og Olivier Messiaen.
Á tónleikunum koma einnig fram kórstjórnarnemendur og kór Tónskólans og flytja tónlist tengda jólahátíðinni.

Orgelnámsferð á slóðir Bachs!

Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar í samvinnu við Félag Íslenskra Organleikara og Tónskóla þjóðkirkjunnar stendur fyrir námsferð íslenskra organista á slóðir Bachs
undir handleiðslu prófessors Hans-Dieter Möller 16.-23. Október 2008.

Lesa áfram

Kynning á orgelskóla Hauks Guðlaugssonar

Haukur Guðlaugsson, fyrrverandi söngmálastjóri þjóðkirkjunnar heldur kynningu í tilefni af útkomu þriðja heftis orgelskóla síns sem er jafnframt lokaheftið.
Kynningin fer fram í Hallgrímskirkju fimmtudaginn 9. október kl. 18. Auk fyrirlesturs Hauks verður leikið á Klais-orgelið verkefni úr orgelskólanum.
Haukur byggir orgelskóla sinn að hluta til á pedaltækni ítalska orgelsnillingsins og kennarans Fernando Germani.
Hauk þarf vart að kynna en hann starfaði sem söngmálastjóri þjóðkirkjunnar í áratugi. Hann starfaði einnig sem organisti við Akraneskirkju frá 1960-82. Auk þess var hann ástríðufullur kennari og er mikill brunnur í kennslufræði og tækni orgeltónlistarinnar.
Nemendur Tónskólans fá sem fyrr kennslubókina á afsláttarkjörum.

Skóladagatal

Hér er komið skóladagatal fyrir veturinn 2008-2009

Setning Tónskólans

Tónskóli Þjóðkirkjunnar verður settur í Grensáskirkju föstudaginn 5. september kl. 17. Kennsla hefst svo mánudaginn 8. september samkvæmt stundaskrá.