Dagana 7. – 20. janúar stendur yfir námskeið fyrir kórstjórnarnemendur Tónskólans.
Það er Stan Engebretson, prófessor við George Washington háskólann í Washington sem kennir. Hann er jafnframt listrænn stjórnandi kórs National Philharmonic sinfóníuhljómsveitarinnar og organisti við New York Avenue Presbeterian kirkjuna í sömu borg.
Námskeiðinu líkur svo með opnum tónleikum í Grensáskirkju mánudaginn 19. janúar n.k. kl. 20. þar koma fram kór Tónskólans og nemendur í kórstjórn.
8. janúar 2009 · Björn Steinar Sólbergsson
Jólafrí nemenda og starfsfólks Tónskólans verður frá og með mánudeginum 15. desember. Kennsla hefst aftur miðvikudaginn 7. janúar 2009.
Starfsfólk Tónskólans óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!
8. desember 2008 · Björn Steinar Sólbergsson
Tvennir tónleikar verða á vegum Tónskóla Þjóðkirkjunnar nú fyrir jólin.
27. nóvember kl. 18 verða tónleikar í Langholtskirkju þar sem fram koma Eyþór Franzson Wechner og Kári Allansson, nemendur Tónskólans og Listaháskóla Íslands á kirkjutónlistarbraut. Á tónleikunum verða flutt verk eftir Johann Sebastian Bach, Dietrich Buxtehude, César Franck og Léon Boëllmann.
5. desember kl. 18 verða svo tónleikar í Hafnarfjarðarkirkju þar sem orgelnemendur Tónskólans leika á hið nývígða orgel kirkjunnar verk eftir Johann Sebastian Bach, Felix Mendelssohn-Bartholdy, Marcel Dupré og Olivier Messiaen.
Á tónleikunum koma einnig fram kórstjórnarnemendur og kór Tónskólans og flytja tónlist tengda jólahátíðinni.
19. nóvember 2008 · Björn Steinar Sólbergsson
Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar í samvinnu við Félag Íslenskra Organleikara og Tónskóla þjóðkirkjunnar stendur fyrir námsferð íslenskra organista á slóðir Bachs
undir handleiðslu prófessors Hans-Dieter Möller 16.-23. Október 2008.
Lesa áfram
10. október 2008 · Björn Steinar Sólbergsson
Haukur Guðlaugsson, fyrrverandi söngmálastjóri þjóðkirkjunnar heldur kynningu í tilefni af útkomu þriðja heftis orgelskóla síns sem er jafnframt lokaheftið.
Kynningin fer fram í Hallgrímskirkju fimmtudaginn 9. október kl. 18. Auk fyrirlesturs Hauks verður leikið á Klais-orgelið verkefni úr orgelskólanum.
Haukur byggir orgelskóla sinn að hluta til á pedaltækni ítalska orgelsnillingsins og kennarans Fernando Germani.
Hauk þarf vart að kynna en hann starfaði sem söngmálastjóri þjóðkirkjunnar í áratugi. Hann starfaði einnig sem organisti við Akraneskirkju frá 1960-82. Auk þess var hann ástríðufullur kennari og er mikill brunnur í kennslufræði og tækni orgeltónlistarinnar.
Nemendur Tónskólans fá sem fyrr kennslubókina á afsláttarkjörum.
7. október 2008 · Björn Steinar Sólbergsson
Hér er komið skóladagatal fyrir veturinn 2008-2009
9. september 2008 · Björn Steinar Sólbergsson
Tónskóli Þjóðkirkjunnar verður settur í Grensáskirkju föstudaginn 5. september kl. 17. Kennsla hefst svo mánudaginn 8. september samkvæmt stundaskrá.
19. ágúst 2008 · Björn Steinar Sólbergsson
Tónskólinn tekur þátt í organistanámskeiði Söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar í Skálholti dagana 18.-20. ágúst með námskeiði Mattiasar Wager í litúrgískum orgelleik. 6 nemendur verða virkir en námskeiðið er öllum opið.
Kennsla í litúrgískum orgelleik leggur áherslu á guðsþjónustuna, orgelundirleik við almennan safnaðarsöng, gerð stuttra forspila og frjálsan spuna. Valdir verða þekktir sálmar sem falla vel til almenns söngs, svo og nýir sálmar. Kennslan skiptist í hóptíma þar sem sýndir verða ótal möguleikar á útfærslu sálmaundirleiks og sálmaforspila, og einstaklingskennslu, þar sem virkir þátttakendur fá einkatíma. Kennslan fer fram við Frobeniusarorgel Skálholtskirkju.
Leiðbeinandi er Mattias Wager organisti dómkirkjunnar í Stokkhólmi.
13. ágúst 2008 · Björn Steinar Sólbergsson
Skrifstofa Tónskólans verður lokuð í júlí vegna sumarleyfa starfsfólks. Skrifstofna opnar aftur þriðjudaginn 5. ágúst.
27. júní 2008 · Björn Steinar Sólbergsson
Skólaslit Tónskólans fóru fram í Hallgrímskirkju föstudaginn 23. maí s.l. Afrakstur vetrarins er ríkulegur þar sem 12 nemendur luku áfanga frá Tónskólanum í vor. Þar af eru 5 nemendur sem luku Kantorsprófi og er það í fyrsta skipti í sögu skólans svo margir ljúka þeim áfanga samtímis. Það voru þau Arnór Vilbergsson, Bjartur Logi Guðnason, Julian Edward Isaacs, Sólveig Sigríður Einarsdóttir og Tómas Guðni Eggertsson. Kirkjuorganistaprófi luku Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Eyþór Franzson Wechner, Hákon Leifsson, Helga Þórdís Guðmundsdóttir, Tryggvi Hermannsson og Örn Magnússon. Ágúst Ingi Ágústsson lauk einleiksáfanga.
Er þeim öllum óskað til hamingju með áfangann og bjartrar framtíðar á akri kirkjutónlistarinnar.
25. maí 2008 · Björn Steinar Sólbergsson