Skólaslit Tónskóla Þjóðkirkjunnar verða í Hallgrímskirkju föstudaginn 23. maí kl. 18. Á skólaslitunum koma fram þeir nemendur sem ljúka Kantorsprófi nú í vor. Það eru þau Arnór Vilbergsson, Bjartur Logi Guðnason, Julian Edward Isaacs, Sólveig Sigríður Einarsdóttir og Tómas Guðni Eggertsson.
19. maí 2008 · Björn Steinar Sólbergsson
Vortónleikar Tónskóla Þjóðkirkjunnar verða í Hallgrímskirkju laugardaginn 17. maí kl. 17. þar koma fram nemendur skólans í orgelleik. Flutt verða verk eftir m.a. Bach, Buxtehude, Böhm, Mendelssohn og Reger.
13. maí 2008 · Björn Steinar Sólbergsson

Spunameistarinn Hannfried Lucke heldur námskeið fyrir nemendur Tónskólans í litúrgískum orgelleik II og III í Hallgrímskirkju dagana 14. apríl frá 13-16 og 15. apríl frá 10-12 og 13-15. Námskeiðið er opið áheyrendum og allir velkomnir. Hann kemur jafnframt fram á tónleikum Listvinafélags Hallgrímskirkju undir yfirskriftinni Töfrar orgelsins laugardaginn 12. apríl kl. 14 og í Grindavíkurkirkju sunnudagskvöldið 13. apríl kl. 20. Þar mun hann leika verk meistara orgeltónbókmenntanna auk þess sem hann mun leika af fingrum fram um gefin stef.
Lesa áfram
7. apríl 2008 · Björn Steinar Sólbergsson
Ágúst Ingi Ágústsson hélt burtfarartónleika frá Tónskólanum, en tónleikarnir fóru fram í Hallgrímskirkju laugardaginn 22. mars. Voru tónleikarnir liður í einleiksáfangaprófi hans. Óhætt er að fullyrða að efnisskrá Ágústar Inga hafi verið sú viðamesta sem nokkur nemandi frá skólanum hefur leikið á lokatónleikum fram að þessu. Á myndinni má sjá Ágúst Inga ásamt kennara sínum Herði Áskelssyni og Birni Steinar Sólbergssyni skólastjóra.

22. mars 2008 · Björn Steinar Sólbergsson
Í gær var undirritaður samstarfssamningur milli Tónskólans og Listaháskóla Íslands um bakkalárnám í kirkjutónlist við hátíðlega athöfn í sal Listaháskólans Sölvhóli. Var táknrænt að samningurinn skyldi undirritaður á fyrrum höfuðstöðvum Tónskólans og Söngmálastjóra. Sjá frétt á kirkjan.is
18. mars 2008 · Björn Steinar Sólbergsson
Hér er hægt að sækja um skólavist í Tónskóla Þjóðkirkjunnar fyrir skólaárið 2008-2009 og senda á tonskoli@tonskoli.is.
Umsókn um skólavist
Skólagjöld 2008-2009
Upplýsingar um nám í kirkjutónlist til BA prófs er að finna á www.lhi.is
5. mars 2008 · Björn Steinar Sólbergsson
Skólaárið 2008-2009 tekur til starfa ný námsbraut í kirkjutónlist við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Námið er í samvinnu Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskólans. Um er að ræða bakkalárnám til 90 eininga/180 ECTS en markmiðið er að undirbúa nemendur fyrir störf í kirkjum landsins. Umsóknarfrestur er 28. mars n.k.
B.A. gráða í kirkjutónlist – pdf
Kirkjutónlist – flæðirit – pdf
Lesa áfram
28. febrúar 2008 · Björn Steinar Sólbergsson
Tónskólinn hefur á undanförnum 2 árum staðið fyrir hjálparnámskeiði fyrir þá erlendu organista sem lítið þekkja til hefða íslensku þjóðkirkjunnar og e.t.v. líka íslenska organista sem ekki hafa haft tækifæri til að afla sér mikillar menntur á þessu sviði.
Nú hefur verið ákveðið að bjóða upp á stutt námskeið fyrir þetta fólk.
Um er að ræða eins dags námskeið sem haldið verður í Grensáskirkju föstudaginn 29. febrúar 2008. Kennari verður Guðný Einarsdóttir, organisti Fella- og Hólakirkju.
Lesa áfram
4. febrúar 2008 · Björn Steinar Sólbergsson
Söngmálastjóri, Hörður Áskelson mun leiðbeina kórstjórnarnemendum
Tónskóla Þjóðkirkjunnar mánudaginn 18. og þriðjudaginn 19. febrúar
frá klukkan 9-13 báða dagana. Allir kórstjórnarnemendur skólans munu
koma með verkefni til Harðar og njóta aðstoðar hans við að leysa ýmis
viðfangsefni á sviði kór og hljómsveitarstjórnar. Hörð þarf vart að
kynna fyrir nemendum en hann hefur verið ötull kór og
hljómsveitarstjóri hérlendis undanfarna áratugi og hefur á
undanförnum árum, flutt megin þorra algengustu verka kirkjutónlistar
með ágætum, þá aðallega með kórum Hallgrímskirkju og m.a.
Sinfóníjuhljómsveit Íslands. Eins hefur Hörður frumflutt fjölda verka
bæði sem orgelleikari og kór og hljómsveitarstjóri. Hörður var
borgarlistarmaður árið 2002.
Lesa áfram
4. febrúar 2008 · Björn Steinar Sólbergsson
Hér kemur endurbætt skóladagatal fyrir vorönn 2008 þar sem fram koma öll námskeið á vegum skólans út önnina.
Skóladagatal
9. janúar 2008 · Björn Steinar Sólbergsson